Folöld sumarsins 2020

Deila á:

Eins og árið á undan voru það þrjú folöld sem fæddust þetta sumarið, tveir hestar og ein hryssa. Skessa frá Kópavogi ( 8,01 ) kastaði brúnskjóttum hesti við Hektor frá Hamarsey. Jökulrós frá Úlfsstöðum ( 8,17 ) kom einnig með hest undan Hektor og er sá jarpskjóttur/höttóttur/blesóttur. Loks kom Saga frá Söguey með bleika hryssu undan Konsert frá Hofi. Hryssurnar mínar fóru undir Pensil frá Hvolsvelli og Hnokka frá Eylandi í sumar og verða sónaðar nú á næstu dögum.