Sjóbleikja, bleikja, sjóbirtingur, urriði
Eyjafjarðará á upptök á jaðri hálendisins sunnan Eyjafjarðar og í fjalllendinu umhverfis Eyjafjarðardal. Áin er dragá með 1.300 km2 vatnasvið og rennur út Eyjafjarðardal um 70 km vegalengd að ósi í Pollinum á Eyjafirði. Hún er fiskgeng um 60 km allt fram að Brúsahvammi í 450 metra hæð yfir sjávarmáli. Í ánna renna margar þverár og eru þær samtals fiskgengar um 24 km. Áin er vatnsmest í lok júní og byrjun júlí – þótt stundum dragist sumarflóðin allt fram í ágúst.
Meðalrennsli er um 40 m3/s við Leirubrú og sennilega 5-10 m3/s á efsta svæðinu.
Óshólmar Eyjafjarðarár ásamt fjörum og flæðimýrum eru á Náttúruminjaskrá.
Söluaðili
Veiðifélag Eyjafjarðarár er söluaðili fyrir Eyjafjarðará og má finna nánari upplýsingar og fróðleik á vefsíðu félagsins, www.eyjafjardara.is
Staðsetning
Aðgengi að ánni er yfirleitt gott, vegur liggur beggja vegna árinnar og víða eru slóðar niður að veiðistöðum. Það er aðallega á svæði 2 sem ekki er hægt að aka að öllum veiðistöðum.
Veiðisvæðið
Pollurinn.
Er strandlengjan frá Leiruvegi og norður að Eimskipsbryggju að vestan en að Halllandsnesi að austan. Veiðar við brú og ræsi á Leiruvegi er þó óheimilar.
Svæði 0. Nær frá merki ca. 100 metrum neðan við gömlu brýrnar austan flugvallarins upp að hitaveituröri við Teig. Auk þess fylgir Varðgjártjörnin svæði 0.
Svæði 1. Nær frá merki við hitaveiturör neðan Teigs að merki 50 m sunnan Munkaþverár Svæði 2. Nær frá merki 50 sunnan Munkaþverár að Guðrúnarstaðabæ
Svæði 3. Nær frá Guðrúnarstaðabæ að merki norðan Hleiðargarðs
Svæði 4. Nær frá merki norðan Hleiðargarðs að göngubrú við Hóla
Svæði 5. Nær frá göngubrú við Hóla að merki við Tjaldbakkahyl
Veiðitímabil
Veiðitími
Til og með 15. ágúst er veitt frá kl. 7-13 og 16-22, en eftir það frá kl. 7-13 og 15-21. Veiðitími á Pollinu er 12 tímar á sólarhring.
Stangir
Veitt er á samtals 12 stangir í ánni, sem er skipt í sex svæði með tveimur stöngum hvert. Mjög rúmt er um veiðimenn enda er samanlögð bakkalengd veiðisvæðis árinnar um 170 km.
Agn
Svæði 0, 1 og 2 er fluga og spúnn. Svæði 3, 4 og 5 er eingöngu fluga. Á Pollinu er allt agn leyfilegt.
Kvóti
Veiði
Á efri svæðum árinnar og í mörgum þveránum er sjóbleikjan ráðandi. Oft eru fyrstu bleikjurnar að ganga uppúr miðjum júlí en stærstu göngurnar virðast vera fyrri partinn í ágúst. Stundum gengur mikið af geldbleikju á neðri svæðin í september. Staðbundinn urriði og sjóbirtingur heldur sig á neðri svæðunum og eru það oft rígvænir fiskar eða allt uppí 80 cm. Staðbundni urriðinn veiðist allt veiðitímabilið en sjóbirtingur í ágúst og september. Veiðibækur síðustu ára má sjá hér.
Veiðihús
Góðar flugur
Veiðibækur
Alla veiði á að færa í rafræna veiðibók Eyjafjarðarár á Veiðitorg.is
Veiðifréttir
Risabirtingur úr Eyjafjarðará
Bræðurnir Valli og Siggi Binni í Veiðirikinu ásamt Sveinbirni Jónssyni skelltu sér einn seinnipart á 1. svæði í vikunni. Heilt yfir var frekar rólegt hjá...
Read MoreÁfram heldur veislan í Eyjafjarðaránni
Félagarnir í Iceland Outfitters hollinu héldu uppteknum hætti í dag eftir góða byrjun seinniparinn í gær. Í dag komu 23 fiskar á land og voru...
Read MoreHoll 2 á Hrísum – byrjar vel
Seinnipartinn í dag, föstudag hófst veiði hjá holli nr 2 sem gistir hjá okkur á Hrísum nú í vor. Í samtali við Sverri Rúnarsson sem...
Read MoreErfiðar aðstæður í opnunarholli
Fyrsta holl vorsins sem gisti hjá okkur á Hrísum lauk veiði í Eyjafjarðará í gær, laugardag. Aðstæður voru krefjandi en hávaða rok var nánast alla...
Read More