Vænir sjóbirtingar veiddust á 2. svæði Eyjafjarðarár í dag. Tristan Darri Ingvason var við veiðar seinni vaktina og landaði 4 fiskum. Um var að ræða boltafiska og voru tveir þeirra yfir 70 cm. Sá stærri 79 cm og annar 72 cm. Veiðin hefur farið vel af stað í ánni þrátt fyrir kuldatíð fyrir norðan frá opnun árinnar. Veiðimenn hafa verið að kljást við krapa í ánni og þegar sólin sest […]
Flokkar Veiði
Fyrstu tveir dagar vorveiðinnar í Eyjafjarðará einkennast af mikilli bleikjuveiði á 1. svæði. Alls hafa rúmlega 50 bleikjur veiðst á svæðinu og eru þær nánast allar á bilinu 50 til 60 cm. Innan við 10 sjóbirtingar hafa veiðst á 1. svæði, frekar smáir en þó einn 67 cm. Þónokkur veiði var einnig á 2. svæði þessa fyrstu tvo daga og virðist sem að meira sé af sjóbirtingi þar. Hægt er […]
Eftir ansi mörg mögur ár í Eyjafjarðaránni er heldur að rofa til. 777 bleikjur voru skráðar á land sl. sumar en það er mesta veiði síðan 2006. Hún á samt langt í land með að ná gullaldarárunum þar sem hún fór mest uppí rúmlega 3600 bleikjur árið 1997. Þó að ástæða hrunsins í ánni sé líklega að stórum hluta náttúrulegar orsakir má ekki útiloka einnig að ofveiði hafi verið hluti […]